Vertu velkomin/n 😀 Opið í Ögurhvarfi mán-fös 9:30-17

Frí sending á pósthús á pöntunum yfir kr. 15.000

Botnstykki GT51M-TH HD/DV/SV

159.900 kr.

Í boði sem biðpöntun

Vörunúmer: 010-01966-10 Flokkar: ,

Vörulýsing

Fullkomið fyrir trillu- og strandveiði og bíður uppá hefðbundið CHIRP, CHIRP ClearVü og CHIRP SideVü sónar. Þetta botnstykki fer gegnum skrokkinn og sýnir skarpa mynd af fiski og aðskilur þá vel í sundur, auk þess að sýna góða myndir af öðru sem gæti legið á botninum. Sýnir vel mynd að því sem er undir og til hliðar við bátinn og hentar vel þegar sjófæri er erfitt.

CHIRP ClearVü/ SideVü sendarnir vinna á 500 wöttum hvor fyrir sig og á 260/455 kHz tíðni. Hefðbundni CHIRP sónarinn er 600 watta Mid-Band og er 80-160kHz. Innbyggt í botnstykkið er hraðvirkur hitanemi. Hentar fyrir kjölhalla (deadrise) undir 5 gráðum.

GT51M-TH er 12-pinna botnstykki og kemur með festingu úr riðfríu stáli, festingu til að stilla halla, einangrunarplötu og ísetningar leiðbeiningum. Fylgið leiðbeiningum nákvæmlega til að koma í veg fyrir skemmdir á bátnum.

Tengdar vörur