Opið í Ögurhvarfi virka daga 9:30-17

Frí sending á pósthús á pöntunum yfir kr. 15.000

Suprabeam Multilamp M6xr

27.900 kr.

10 á lager

Vörunúmer: 5266111 Flokkar: , ,
▼ LÝSING
▼ TÆKNIUPPLÝSINGAR
▼ AUKAHLUTIR

FJÖLNOTA VASALJÓS

Suprabeam M6xr er fjölnota vasaljós sem skilar 2000 lúmenum. M6xr virkar sem venjulegt vasaljós og höfuðljós, en ljósinu fylgir höfuðband með Quick Release festingu. Einnig er segull á öðrum endanum sem hægt er að nota til að festa ljósið við málmfleti.

FESTINGAR

Hægt er að festa ljósið á málmfleti með innbyggða seglinum og við höfuðbandið sem fylgir ljósinu og því virkar það einnig sem höfuðljós. Svo fylgir ljósinu einnig klemma sem þú getur notað til að festa það við belti eða vasa.

RAFHLAÐA MEÐ USB

Suprabeam M6xr vasaljósið er með sérhönnuðum rafrásum sem minnkar hitamyndun  og orkunotkun  LED perunnar. Þ.a.l. er hægt að nota M6xr 30-40% lengur á hærri birtustillingu.

ROFI MEÐ STYRKSTILLI

Suprabeam M6r er með rafrænum rofa sem gerir allar stýriaðgerðir mun fljótlegri. Stiglaust styrkstilli gefur þér það ljósmagn sem hentar þér.

Quick release festing

Þessi festing var sérhönnuð fyrir M6r vasaljósið. Auðvelt er að festa og fjarlægja vasaljósið úr festingunni. Festingin grípur þétt um vasaljósið og hægt er að snúa því þannig að það lýsi í þá átt sem þú vilt. 

Eins og með önnur höfuðbönd frá Suprabeam þá eru tvær sílíkonrendur á bandinu sjálfu svo það helst á sínum stað. Einnig er festingin með útskiptanlegum púða svo það sé sem þægilegast þegar það er fest við höfuðbandið.

Segulfesting

Hægt er að festa vasaljósið á hvaða málmflöt sem er með innbyggða seglinum á botni vasaljóssins. Það hentar einstaklega vel við aðstæður eins og vélaskoðun og fleira.

Samhæft CR123 rafhlöðum

Suprabeam M6xr vasaljósið gengur bæði fyrir 2x CR123 rafhlöðum og endurhlaðanlegu rafhlöðunni sem fylgir vasaljósinu. Ef að innbyggða rafhlaðan skildi tæmast er lítið mál að skipta henni úr fyrir 2x CR123 rafhlöður. Með þessum tveimur CR123 rafhlöðum er hægt að nota M6xr vasaljósið við erfiðar aðstæður – alveg niður í 40°C. 

Innbyggð rafhlaða með USB-C

Suprabeam M6xr vasaljósinu fylgir endurhlaðanleg Li-ion rafhlaða með USB-C tengi og USB-C kapall til að hlaða. Þú einfaldlega stingur rafhlöðunni í samband til að hlaða.

Hægt er að fjárfesta í auka rafhlöðu til að þú getir alltaf verið með nýhlaðna rafhlöðu í ljósinu.

Rafrænn rofi

M6xr vasaljósið er með rafrænum rofa sem gerir þér kleift að stilla birtustigið á lýsingunni eins og þér hentar. Vasaljósið kveikir á sér á síðustu stillingu sem notuð var og ef þú heldur rofanum inni í 0,6 sekúndur fer vasaljósið á hæstu birtustillingu. Ef þú villt dimma ljósið á það birtustig sem þú vilt þá getur þú haldið rofanum inni, en slökkt þarf að vera á ljósinu áður en byrjað er.

Rofinn sjálfur er gúmmi með gripi sem veitir sem best grip.

Fleiri festingar

M6xr vasaljósið er hægt að festa á vasa eða belti með stálklemmu eða á höfuðband. Einnig er hægt að festa það á hjálm með límfestingu eða á hjól með sérstakri hjólreiðafestingu.

Vatnsheldni

IP-staðall (e. Ingress Protection), sem svo er kallaður er viðurkennd aðferð til mælinga á hversu vel tæki og tól þola ryk og vökva.

Tæki sem merkt eru hinum alþjóðlega staðli og merkt IP68 eru metin nægilega þolgóð til að standast ryk, skít og sand og þola jafnframt að vera í kafi á allt að 1,5 metra dýpi í allt að 30 mínútur.

M6r hefur verið prófað niður á 2m dýpi.

TÆKNIUPPLÝSINGAR

Specification

LED: 1 CREE power chip
Case: Anodized, High Strength Aluminium
Color: Black / Anthracite Dark Grey
Switch: Electronic Switch With Solid Silicone Cover
Headband: Black fabric with silicone stripes, Fits to 50-70 centimeters
Weight incl. battery: 114g
Ingress Protection Rating: Waterproof IP68
Temperature: -20°C (-40°C with CR123 ) to +50°C
Controller: Yes, dimmable
Power Source: Li-ion 18650 3000 mAh (10.8 Wh) 3.6 V. With internal USB-C charging. 1 pcs. included
Beam / Distance: Mixed beam 30°/70° / 165 Meter
Luminous Flux: Max: 2000 lm / Dimming: 600-6 lm / CR123: 1500 lm
Lighting Time: Max: 2h 30min / Dimming: 2h 45min – 260h / CR123: 2h
Charging Time: 80% = 2h 20min / 100% = 4h 40min
Battery indication: Yes
Accessories included: Washable Headband, USB-C Charging Cable, Adhesive Helmet Mount, Manual
Article. No.: 526.6111
Packaging: Recyclable Cardboard Packaging
0