18.900 kr.
8 á lager
FJÖLNOTA VASALJÓS
Suprabeam M6r er fjölnota vasaljós sem skilar 600 lúmenum. M6r virkar sem venjulegt vasaljós og höfuðljós, en ljósinu fylgir höfuðband með Quick Release festingu. Einnig er segull á öðrum endanum sem hægt er að nota til að festa ljósið við málmfleti.

FESTINGAR
Hægt er að festa ljósið á málmfleti með innbyggða seglinum og við höfuðbandið sem fylgir ljósinu og því virkar það einnig sem höfuðljós. Svo fylgir ljósinu einnig klemma sem þú getur notað til að festa það við belti eða vasa.

RAFHLAÐA MEÐ USB
Ný sérhönnuð Lithium rafhlaða sem hægt að hlaða með USB fylgir vasaljósinu. Hægt er að versla aðra rafhlöðu aukalega til að þú getir notað vasaljósið sem mest.

RAFRÆNN ROFI
Suprabeam M6r er með rafrænum rofa sem gerir allar stýriaðgerðir mun fljótlegri.
Quick release festing
Þessi festing var sérhönnuð fyrir M6r vasaljósið. Auðvelt er að festa og fjarlægja vasaljósið úr festingunni. Festingin grípur þétt um vasaljósið og hægt er að snúa því þannig að það lýsi í þá átt sem þú vilt.
Eins og með önnur höfuðbönd frá Suprabeam þá eru tvær sílíkonrendur á bandinu sjálfu svo það helst á sínum stað. Einnig er festingin með útskiptanlegum púða svo það sé sem þægilegast þegar það er fest við höfuðbandið.
Segulfesting
Hægt er að festa vasaljósið á hvaða málmflöt sem er með innbyggða seglinum á botni vasaljóssins. Það hentar einstaklega vel við aðstæður eins og vélaskoðun og fleira.
Rafrænn rofi
M6r vasaljósið er með rafrænum rofa sem gerir þér kleift að stilla birtustigið á lýsingunni eins og þér hentar. Vasaljósið kveikir á sér á síðustu stillingu sem notuð var og ef þú heldur rofanum inni í 0,6 sekúndur fer vasaljósið á hæstu birtustillingu. Ef þú villt dimma ljósið á það birtustig sem þú vilt þá getur þú haldið rofanum inni, en slökkt þarf að vera á ljósinu áður en byrjað er.
Rofinn sjálfur er gúmmi með gripi sem veitir sem best grip.
Fleiri festingar
M6r vasaljósið er hægt að festa á vasa eða belti með stálklemmu eða á höfuðband. Einnig er hægt að festa það á hjálm með límfestingu eða á hjól með sérstakri hjólreiðafestingu.
Vatnsheldni
IP-staðall (e. Ingress Protection), sem svo er kallaður er viðurkennd aðferð til mælinga á hversu vel tæki og tól þola ryk og vökva.
Tæki sem merkt eru hinum alþjóðlega staðli og merkt IP68 eru metin nægilega þolgóð til að standast ryk, skít og sand og þola jafnframt að vera í kafi á allt að 1,5 metra dýpi í allt að 30 mínútur.
M6r hefur verið prófað niður á 2m dýpi.
TÆKNIUPPLÝSINGAR
Specification
| LED: | 1 CREE power chip |
| Case: | Anodized, High Strength Aluminium |
| Color: | Black / Anthracite Dark Grey |
| Switch: | Electronic Switch With Solid Silicone Cover |
| Headband: | Black fabric with silicone stripes, Fits to 50-70 centimeters |
| Weight incl. battery: | 111g |
| Ingress Protection Rating: | Waterproof IP68 |
| Temperature: | -20°C to +50°C |
| Controller: | Yes, dimmable |
| Power Source: | Li-ion 18650 3000 mAh (10.8 Wh) 3.6 V. With internal charging. 1 pcs. included |
| Beam / Distance: | Mixed beam 20°/60° / 150 Meter |
| Luminous Flux: | Max: 600 lm / Dimming: 450-6 lm |
| Lighting Time: | Max: 3h 45min / Dimming: 4h – 240h |
| Charging Time: | 80% = 2 h 20 min / 100% = 4 h 40 min |
| Battery indication: | Yes |
| Accessories included: | Washable Headband, USB Charging Cable, Adhesive Helmet Mount, Manual |
| Article. No.: | 526.5011 |
| Packaging: | Recyclable Cardboard Packaging |





















