24.900 kr.
8 á lager
Suprabeam V3pro
Suprabeam V3pro er höfuðljós sem sameinar þægindi og hönnun. Höfuðljósið er tilvalið í leit eða önnur ævintýri. Það kemur með litlu batterýshúsi og endurhlaðanlegri rafhlöðu.


USB-C HLEÐSLURAFHLAÐA
Höfuðljósinu fylgir USB-C hleðslurafhlaða.

STILLINGAR Á LJÓSGEISLA
Þú þarft einungis að færa hausinn á vasaljósinu fram eða aftur til að breyta um breidd ljósgeislans.

RAUTT AFTURLJÓS
Aftan á höfuðljósinu á rafhlöðupakkanum er rautt, blikkandi, öryggisljós sem að hægt er að kveikja og slökkva á.
Hágæða smíði
Öll vasaljósin frá Suprabeam eru smíðuð úr hágæða rafbrynjuðu áli sem er litað grátt. Álið gerir það að verkum að vasaljósið er sterkbyggt og dreifir hitanum sem LED peran myndar um allt vasaljósið. Svo hjálpar það vasaljósinu einnig að kólna.
Hágæða vönduð smíði er það sem gerir Suprabeam vasaljósin sérstök. Mjúkur geislastillir, rafrænn sílíkonrofi, gott grip og fleira sér til þess að vasaljósið skili sínu.


Hleðslurafhlaða með USB-C
Suprabeam V3pro höfuðljósinu fylgir endurhlaðanleg Li-Po rafhlaða með USB-C tengi og USB-C kapall til að hlaða. Þú einfaldlega stingur rafhlöðunni í samband til að hlaða.
Hægt er að fjárfesta í auka rafhlöðu til að þú getir alltaf verið með nýhlaðna rafhlöðu í ljósinu.
Gengur lengur
V3pro höfuðljósið er með öflugri PCB prentplötu og DC straumbreyti. Rafkerfið er þannig uppsett að LED flagan er skilvirkari í notkun og minnkar bæði hitamyndun og orkunotkun.
Þetta allt saman skilar sér í lengri notkunartíma miðað við sambærileg vasaljós.


Málmrofi og snjallstýring
V3pro höfuðljósið er með málmrofa sem að þú ýtir á til að skipta á milli birtustillinga. Rofinn er neðan við ljósið sjálft og auðvelt að ýta á hann í hönskum. ILC snjallstýring sér um ljósastillingarnar.
Max = Hámarksbirtustilling
Standard = Venjuleg meðalsterk birtustilling
Dimmer = Minnkar birtuna í þá stillingu sem hentar þér
Minni = Man eftir síðustu notuðu birtustillingu
Lás = Læsir höfuðljósinu til þess að það kvikni ekki á því í flutningi
ILC snjallstýring
1. Kveikir á höfuðljósinu á venjulegri birtustillingu eða síðustu birtustillingu.
2. Haltu niðri rofanum í 0,8 sekúndur til að breyta yfir í MAX stillingu. Þú gerir slíkt hið sama til að breyta til baka.
3. Ýtir til að slökkva.


Lás
1. Kveikir á höfuðljósinu á standard eða síðustu birtustillingu.
2. Haltu inni rofanum í 6 sekúndur til að virkja lásinn.
3. Haltu inni rofanum í 6 sekúndur til að slökkva á lásnum.
Baklýsing
1. Kveikir á höfuðljósinu á venjulegri birtustillingu eða síðustu birtustillingu.
2. Haltu niðri rofanum í 3 sekúndur til að kveikja á rauða afturljósinu. Þú gerir slíkt hið sama til að breyta til baka.


Stöðuljós á rafhlöðu
Þegar rafhlaðan á einungis 10% eftir af hleðslu þá minnkar höfuðljósið birtustigið niður í 10-15% af hámarks birtu. Þannig ertu látin/n vita að komið sé að því að hlaða rafhlöðuna. Rafhlaðan endist í 30-60 mínútur á þessari stillingu.


TÆKNIUPPLÝSINGAR
Specification
| LED: | 1 CREE Power Chip |
| Case: | Hi-Tech Compound / Aluminium |
| Color: | Anthracite Dark Grey |
| Switch: | Metal Switch Below Head |
| Headband: | Fits to 50-70 centimeters |
| Weight: | 184g |
| IP Rating: | Splash Waterproof IPx4 |
| Temperature: | -20°C to +50°C |
| Controller: | YES, Dimming+Memory, Max Mode |
| Power Source: | Li-Po 2800 mAh (10.4 Wh) 3.7 V. With internal charging. 1 pcs. included |
| Charging time: | 100% = 4h 30min | 80% = 3h |
| Beam Distance: | 245 meters |
| Luminous Flux: | Max 1000 LM / Standard 180 LM / Dimming 300-6 LM |
| Lighting Time: | Max 3h / Standard 8h / Dimming 225h |
| Accessories: | Removable cable, Washable Headband, Manual |
| Packaging: | Recyclable Cardboard Packaging |
| Part. No.: | 612.5211 |
































