34.900 kr.
5 á lager (hægt að leggja inn biðpöntun)
NÝ SÝN Á SJÓKORT
Garmin Navionics+ eru ný kynslóð sjókorta frá Garmin. Einstök litapalletta og straumlíunlaga viðmót einkennir Garmin Navionics+ sjókortið sem hjálpar þér að vita hvar þú ert og hvert þú ferð¹.
Besta kortalausnin fyrir kortaplotterinn þinn.
Hægt er að sérsníða útlitið á kortinu og setja þekjur yfir það.
Eins árs áskrift af ActiveCaptain appinu fylgir sjókortinu.
Leiðarútreikningur² (Auto Guidance) reiknar leið út frá uppgefinni dýpt og hæð og gefur þér hugmynd af leið sem hægt er að fara.
Hægt að skyggja ákveðnar dýptir með ákvenum lit svo að fljótlegt sé að sjá dýptina á kortinu (Depth Range Shading). Hægt að vera með 10 skyggingar.
Það er hagstæðast að halda áfram í áskrift á ActiveCaptain til að uppfæra kortið þitt sem oftast.
ALLT SEM ÞÚ ÞARFT
Sjókortið er fullt af upplýsingum og inniheldur bæði gögn frá Garmin og Navionics.
DAGLEGAR UPPFÆRSLUR
Sjókortin eru uppfærð mjög reglulega – sum allt að 5.000 sinnum á dag. Þeim fylgir eins árs áskrift af ActiveCaptain sem gerir þér kleift að uppfæra þau í gegnum appið í samhæfum snjallsíma.
SJÁLFVIRKUR LEIÐAÚTREIKNINGUR
Sjálfvirkur leiðarútreikningur² (Auto Guidance) reiknar út leið útfrá dýpt og hæð sem slegin er í tækið svo að bátinn reki ekki niður í botn eða upp undir brú eða annað mannvirki.
DÝPTARSKYGGING
Með dýptarskyggingu (Depth Range Shading) er hægt að slá inn dýptarbil (t.d frá 1 metra til 2ja metra dýpi) og skyggja það með ákveðnum lit þannig að það sést áberandi á kortinu hvar slíkar dýptir eru. Hægt er að stilla inn 10 mismunandi skyggningar í sitthvorum lit.
NÁKVÆMAR DÝPTARLÍNUR
Garmin Navionics+ kemur með allt að 0,5m dýptarlínum sem gefa nákvæmari mynd af botninum sem skilar sér í bættum veiðikortum og auknum smáatriðum þegar kemur að mýrum, skurðum og höfnum.
SKYGGING Í GRYNNINGUM
Til að hjálpa við leiðsögn þá skyggir tækið grynningar (Shallow Water Shading) miðað við dýpt sem notandinn slær inn í tækið. Þannig færðu skýra mynd af grynningum sem þú þarft að forðast.
ACTIVE CAPTAIN
Hægt er að sækja gögn eins og áhugaverða staði, verslanir, hættur eða fleira frá öðrum notendum í gegnum ActiveCaptain samfélagið.