109.900 kr.
8 á lager
RAUNVERULEG HEILSUGÖGN Í RAUNTÍMA
Heilsumælirinn er einfaldur í notkun og festist utan um taglið á hestinum. Mælirinn veitir þér innsýn svo þú getir tekið upplýstari ákvarðanir um velferð og þjálfun hestsins.

Endingargóð, þægileg og hentug hönnun.

Skoðaðu gögn í rauntíma á samhæfum snjallsíma eða Garmin snjallúri.

Mældu æfingar, endurheimt og flutninga.

Sjáðu púls, skref, gangtegundir og fleira¹.

Fáðu yfirlit yfir hápunkta eftir æfingu.

Rafhlöðuending allt að 25 klst.

HANNAÐ FYRIR HESTA
Blaze heilsumælir fyrir hesta samanstendur af endingargóðum og þvottavænum neoprenumbúningi með frönskum rennilásum og léttum, orkusparandi skynjara sem hægt er að fjarlægja.

GÖGN Í RAUNTÍMA
Paraðu við Blaze™ appið í snjallsímanum þínum eða notaðu Blaze appið úr Connect IQ™ á samhæfu Garmin snjallúri til að skoða hjartslátt, skrefalengd, gangtegund, vegalengd og fleira¹ (þarfnast tengingar með BLUETOOTH®).

EINFALT Í NOTKUN
Auðvelt er að festa bandið, sem heldur skynjaranum, á neðanverðt tagl hestsins. Mælirinn safnar heilsu- og þjálfunargögnum án þess að þurfa sérstaka undirbúningsvinnu við húðina.

ÖFLUGUR SKYNJARI
Púlsmælirinn veitir áreiðanleg gögn meðan á hreyfingu stendur og við mismunandi umhverfisaðstæður.

INNSÝN EFTIR ÆFINGU
Skoðaðu upplýsingar eftir æfingu í Blaze appinu – þar á meðal endurheimtarhraða, tíma í hjartsláttarsvæðum, húðhita, hápunkta æfingar og fleira.

GÖGNIN Á ÚLNLIÐNUM
Notaðu Blaze appið á samhæfu Garmin snjallúri til að fylgjast með sérstökum atburðum eins og þjálfun, endurheimt og flutningi (krefst tengingar með BLUETOOTH).
HEILSA

FYLGSTU MEÐ NOKRUM HESTUM
Þú getur notað sama mælinn fyrir nokkra mismunandi hesta og búið til prófíl fyrir hvern og einn.

BREYTINGAR Á HÚÐHITA
Eftir örfáar mínútur í notkun geturðu séð hvernig meðaltalshúðhiti hestsins breytist – sem getur tengst hreyfingu, umhverfi, mögulegum veikindum og fleiru.

HITAEINKUNN
Hitaeinkunnin byggir á samanlögðum gildum lofthita og rakastigs. Út frá þessari heildarniðurstöðu færðu leiðbeiningar um hversu öruggt það er að ríða út á þeim tíma.

SKOÐAÐU ÆFINGARNAR ÞÍNAR
Skoðaðu GPS feril eftir þjálfunar- eða flutningaferðir þegar þú ert tengd(ur) við Garmin snjallúr eða samhæfan snjallsíma.

RAFHLÖÐUENDING
Allt að 25 klst rafhlöðuending. Það er auðvelt að fjarlægja mælinn úr beltinu til að hlaða hann og hreinsa.
TÆKNIUPPLÝSINGAR
General
Connectivity
| CONNECTIVITY | BLUETOOTH© technology |
|---|---|
| Distance/range | 10 m (33 ft) |
| Pairs with Blaze™ App | Yes (Apple® and Android™) |
| Pairs with Connect IQ™ Store App | Via compatible Garmin smartwatch |
| Number of concurrent connections supported | One primary user; any number of spectators via optional broadcast mode |
Features
| Equestrian activity tracking | Yes |
|---|---|
| Real-time monitoring | Yes |
| Heart rate | Yes |
| HR zones | Yes |
| Threshold alerts | Yes (alerts for no heart rate detected, elevated heart rate, change in skin temperature, severe heat score, cold weather advisory, session ended, low battery, software updates) |
| Activity types | Outdoor/Indoor training, Recovery, Transport |
| SKIN TEMPERATURE CHANGES | Yes |
| Heat score | Yes |
| WEATHER | Yes (via Blaze smartphone app ) |
| Locations | Yes (when sensor is paired to GPS-enabled smartwatch; also available when paired with your GPS-enabled smartphone) |
| Distance | Yes |
| Speed | Yes |
| Strides | Yes |
| Gait detection | Yes |































