Vertu velkomin/n 😀 Opið í Ögurhvarfi mán-fös 9:30-17

Frí sending á pósthús á pöntunum yfir kr. 15.000

Sjókort BlueChart g3 Regular Atl.

29.900 kr.

9 á lager (hægt að leggja inn biðpöntun)

Vörunúmer: 010-11332-05 Flokkur:
▼ LÝSING
▼ TÆKNIUPPLÝSINGAR
▼ AUKAHLUTIR

STÓR SVÆÐI OG MIKIL NÁKVÆMNI

BlueChart g3 sjókort eru ein bestu kortin á markaðnum í dag hvað varðar skýrleika, nákvæmni og upplýsingar um strandlengjur. Gerð með upplýsingum frá Garmin og Navionics. Leiðarútreikningur (Auto Guidance) reiknar út leið út frá uppgefinni dýpt og hæð sem slegin er inn og gefur þér hugmynd af leið sem hægt er að fara sem leggst yfir kortið. Einnig er hægt að sækja stafrænar útgáfur af pappírskortum (NOAA raster cartography) án endurgjalds í gegnum ActiveCaptain appið. Þannig bíður kortaplotterinn þinn uppá kortamynd af svæðum skráðum af NOAA (National Oceanic and Atmospheric Administration) þar sem áhugaverðir punktar eru merktir með lengdar- og breiddargráðum. Kortin ná yfir allan heiminn og er honum skipt niður í minni svæði sem hægt er að nálgast á minniskubb eða sem niðurhal. Hvert svæði er selt sér.

Golf

Bestu kortin á markaðnum hvað varðar skýrleika, nákvæmni og uppfærðar upplýsingar á strandlengjum. Gert með upplýsingum frá Garmin og Navionics®.

Leiðarútreikningur¹ (Auto Guidance) reiknar leið út frá uppgefinni dýpt og hæð og gefur þér hugmynd af leið sem hægt er að fara.

Hægt að skyggja ákveðnar dýptir með ákvenum lit svo að fljótlegt sé að sjá ca dýptina á kortinu (Depth Range Shading). Hægt að vera með 10 skyggingar.

Allt að 30 cm dýptarlínur til að sjá nákvæmari mynd af botninum. Hentar vel í veiði og þegar verið er að sigla um mýrar, skurði eða í höfnum.

SJÁLFVIRKUR LEIÐAÚTREIKNINGUR

Sjálfvirkur leiðarútreikningur (Auto Guidance1) reiknar út leið útfrá dýpt og hæð sem slegin er í tækið svo að bátinn reki ekki niður í botn eða upp undir brú eða annað mannvirki.

DÝPTARSKYGGING

Með dýptarskyggingu (Depth Range Shading) er hægt að slá inn dýptarbil (t.d frá 1 metra til 2ja metra dýpi) og skyggja það með ákveðnum lit þannig að það sést áberandi á kortinu hvar slíkar dýptir eru. Hægt er að stilla inn 10 mismunandi dýptar bil og merkja með sitthvorum litnum.

NÁKVÆMAR DÝPTARLÍNUR

BlueChart g3 eru með 30 cm (1 fet) dýptarlínum sem gefa nákvæmari mynd af botninum sem skilar sér í bættum veiðikortum og auknum smáatriðum þegar kemur að mýrum, skurðum og höfnum.

SKYGGING Í GRYNNINGUM

Til að hjálpa við leiðsögn þá skyggir tækið grynningar (Shallow Water Shading) miðað við dýpt sem notandinn slær inn í tækið. Þannig færðu skýra mynd af grynningum sem þú þarft að forðast.

1 Auto Guidance is for planning purposes only and does not replace safe navigation operations. Auto Guidance is not included in preloaded BlueChart g3 for ECHOMAP™ Plus series chartplotters.